16.6.2008 | 14:48
Nú er tækifærið
Nú ættu allir þessir sem misstu sig í hneykslan út af drápinu á hinum að flýta sér norður að kjassa bangsa, lokka hann inn í gám eða hnýta upp í hann snæri og teyma í húsdýragarðinn.
Ísbjörn í æðarvarpi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Hvernig í ósköpunum á að fanga bangsann og hvað á svo að gera við hann? Það væri kannski ráð að fá Árna Finnsson og einhverja "kaffihúsanáttúruverndarsinna" til þess að lokka bangsa inn í gám, hann yrði varla neitt órólegur fyrr en hann væri búinn að klára þá, en hvað svo? Er fólk virkilega svo barnalegt að halda að það sé hægt að umgangast bangsa eins og eitthvað gæft og meðfærilegt gæludýr?
Jóhann Elíasson, 16.6.2008 kl. 17:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.