Ofvirkir fjölmiðlar

Frábært að einhver skuli græða á þessum linnulausa og yfirdrifna hræðsluáróðri fjölmiðlanna.  Þeir mættu nú hægja aðeins á í  þessu og fjalla aðeins um eitthvað annað.

 


mbl.is Kaupa rykgrímur og spritt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Af hverju þarf endilega að KAUPA sér svona grímu? Er ekki hægt að nota klút eða álíka sem gerir alveg sama gagn? Það er kreppa gott fólk. Það er svo 2007 að kaupa sér lausnir. Notið klúta ef þetta er svona óskaplega nauðsynlegt að hylja andlit sín.

Og síðan er þetta svo ófrumlegt. Dettur okkur ekkert annað í hug en að apa eftir sjónvarpsfréttamyndum frá Asíu þegar allir fara skurðgrímuklæddir um stræti og torg. Og nótabene, þar er nálægðin í milljónaþrengslunum við næsta mann á lestarstöðinni öllu meiri en hér á skerinu þar sem flestir eru hvort eð er einangraðir í bílnum sínum.

Sjaldan datt neinum í hug að nota grímur í svifryksfaraldrinum og var þó ærin ástæða til - amk. fyrir þessa örfáu sem voru ekki á bíl.

Við erum nú óttalega mikil fífl.

Steini (IP-tala skráð) 29.4.2009 kl. 15:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband