Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Stórfrétt?

Það lýsir kannski ástandinu vel ef það heyrir til stórtíðinda að það finnist þorskur við Íslandsstrendur sem er ekki grindhoraður.   Sama er að segja um loðnuna. Menn bíða orðið með öndina í hálsinum á hverju ári hvort og þá hvað mikið finnst af henni.  Auðvitað er búið að ganga allt of nærri þessum stofnum á umliðnum áratugum og  nú eru menn að fást við afleiðingarnar.
mbl.is Feitur fiskur úr sjó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjáum til.

Já, þetta styrkir mig í þeim væntingum sem ég hef haft til Þórunnar Sveinbjarnardóttur.  Vonandi verður hún fyrsti umhverfisráðherran, sem kvittar ekki athugasemdalaust,  upp á allt sem Landsvirkjun réttir að henni.  Einnig vekur þetta vonir um að Samfylkingin hafi ekki étið allt fagra  Íslandið ofan í sig aftur.
mbl.is Umhverfisráðherra heimsækir Sól á Suðurlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grunaði ekki Gvend

Það er smátt og smátt að koma í ljós það sem marga grunaði en fáir þorðu að segja.  Meðvirknin og húrrahrópin hefðu mátt vera aðeins minni. 
mbl.is Segir útrásina hafa lítil áhrif
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfsagt að drepa síðustu loðnukvikindin

Já, auðvitað. Um að gera að  útrýma  síðustu loðnusílunum. Þá þarf ekkert að vera að hafa áhyggjur af því meir. Og þá losnum við líka við að kosta til við að drepa þá fiska sem á loðnunni lifa því þeir verða þá fljótlega sjálfdauða úr hungri.
mbl.is Leggja til aukningu loðnukvóta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vegurinn liggur ekki yfir Reynisfjall!

Þjóðvegur eitt sem liggur norður og vestur af Vík fer ekki yfir Reynisfjall. Fyrsti kafli vegarins er í sneiðingi neðst, austan í fjallinu en kemur svo ekki að því sjálfu aftur.  Skarðið sem hann liggur eftir er á milli Reynisfjalls að vestan og Höttu að austan.  Þetta fjallaskarð heitir einu nafni Víkin og er líka stundum ranglega nefnt Víkurskarð.  Víkin skiptist svo í mörg mismunandi örnefni.

Vik vegur

 


mbl.is Enn ófært um Reynisfjall
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loðnuveiðum lokið?

Það er ótrúlegt hvað margir virðast halda að loðnana sé einhver ótæmandi auðlind, sem engin leið sé að ofveiða, hvað sem leitartæknin og veiðarfærin verða fullkomin. Alltaf vilja menn meina að ,,auðvitað sé nóg til"  hún sé bara einhversstaðar þar sem hún finnist ekki vegna breytts göngumynsturs, sem stafar af hlýnunar sjávar. O.s.frv.  Algengt er að heyra þá skoðun að það sé allt í lagi að veiða hana nánast upp, þar sem hún drepist hvort sem er eftir hrygningu.  Allt sem drepst eftir hrygningu hverfur ekki út út lífríkinu og sú sem er veidd  hrygnir ekki.  Ungloðnan sem er hér að veltast við landið, áður en hún fer norður í höf er matarkista fyrir fiska og fugla.  Það er engin tilviljun að menn eru farnir að óttast hvað lunda og öðrum sjófugli fækkar við landið. Það á sér líka lengri aðdraganda en margir vilja viðurkenna.  Þar kemur til sama sjónarmiðið og með loðnuna.  Menn yppta öxlum og vilja ekki viðurkenna vandann fyrr en allt er komið í óefni. Þetta virðist vera eitthvað í íslendingseðlinu. Er það kæruleysi?  Þrjóska, sem lýsir sér í því að viðurkenna aldrei neitt fyrr en allt er komið í óefni? Eða í versta falli, heimska?  Það væri örugglega annað og betra ástand í hafinu ef menn hefðu haft skynsemi til að hætta þessari rányrkju á loðnunni fyrir löngu síðan. Þá hefði örugglega ekki þurft að skera niður þorskveiðina núna og líklega ræki minna af hungurdauðum sjófugli, sandsílið og rækjan væru ekki horfin og Vestmannaeyingar gætu veitt, reykt og snætt sinn lunda án þess að hafa samviskubit af því að ofveiða stofninn.

 

 


Kemur ekki á óvart.

Auðvitað hlaut að enda með því að þessum fiski yrði útrýmt, eins og veiðiálagið hefur verið í áraraðir. Vonandi bjargar þó veiðibannið  nokkrum  hungruðum þorskum og sjófuglum.


mbl.is Tekjutap upp á 7-8 milljarða verði loðnuveiðum hætt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geir og Ingibjörg að hugga peyjana.

Það er dálítið fyndið að stórlaxarnir úr fjármálalífinu skuli hafa verið að funda með Geir og Ingibjörgu, vegna þess hvað allir og þá sérstaklega einhverjir útlendingar eru vondir við þá.  Þetta eru eins og óknyttastrákar, sem hafa verið teknir á beinið út af einhverjum skammastrikum. Þá er hægt að fara og væla utan í pabba og mömmu. Hvað oft hefur heyrst í gegnum tíðina eitthvað þessu líkt frá þessum hópi manna: Við viljum bara fá frið fyrir stjórnmálamönnum.  Afskipti  þeirra af atvinnurekstri skapa einungis vandamál, o.fl. í þessum dúr.  Hefði þetta ekki einhverntíma kallast pilsfaldakapítalismi?

Hagkvæmni borgarlífsins

Var að velta því fyrir mér, síðast þegar ég var fastur í umferðaröngþveiti höfuðborgarinnar að gaman væri að einhver töluglöggur maður reiknaði út hvað borgarbúar eyddu mörgum klukkustundum á ári, bíðandi á rauðum ljósum, leitandi að bílastæðum eða fastir í umferðarhnútum.


Timburmennirnir

Hömlulaus veisluhöld valda oftast slæmum timburmönnum.
mbl.is Líklegt að fleiri en Gnúpur lendi í vanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband