31.8.2010 | 08:59
Arðsemi og ávöxtunarkrafa?
Ekki minnist ég þess að BHM andmælti þegar lífeyrissjóðirnir fjárfestu í bólufyrirtækjunum. Þar átti nú aldeilis að vera nóg arðsemi. Háskólamenn og aðrir skilja kannski ekki að verðmætin verða til í atvinnulífinu og hvergi annarsstaðar. Þeir ættu vitanlega að láta sjóðinn sinn fjárfesta í öllum þessum háskólum okkar íslendinga. Það hljóta að vera arðsöm fyrirtæki.
Ósátt við fjárfestingar sjóðs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Hvernig getur það verið góður fjárfestingarkostur að fjárfesta í Húsasmiðjunni sem er rekið með bullandi tapi og selur vörur undir kostnaðarverði til halda uppi veltu.
Sigurður Sigurðsson, 31.8.2010 kl. 09:21
Rétt Sigurður og hvernig á að verðmeta þannig fyrirtæki?
Tryggvi Þórarinsson, 31.8.2010 kl. 09:24
Fjármunirnir verða til í "Húsasmiðjunni", engin spurning, á hinum endalausu Tax Free dögum öllum til hagsbóta. Síðan er bara að láta 12 % tekna sinna renna til lífeyrissjóðanna svo peningarnir haldi áfram að streyma til Húsasmiðjunnar.
Magnús Sigurðsson, 31.8.2010 kl. 09:44
Akkúrat Magnús! Ég vildi bara að það stæði skýrt á öllum kvittunum frá Húsasmiðjunni: "Þetta verð er kostað af skattborgurum Íslands í samvinnu við Lífeyrissjóðina"
Jón Bragi Sigurðsson, 31.8.2010 kl. 12:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.