Afnema verðtrygginguna

Ef menn ætla ekki að þora að afnema verðtrygginguna breytist ekkert.  Er það kerfi ekki fullreynt? Hvað ætla menn lengi að berja hausnum við steininn?  Eins og fáráðlingarnir á ASÍ þinginu sem höfnuðu tillögu um afnám þessarar sjálfvirku svikamyllu verðhækkana, þar sem allt bítur í skottið á sjálfu sér.  Hræðsluáróðurinn sem sumir stunda um afturhvarf til þess tíma þegar peningar brunnu upp og eina fjárfestingin var steinsteypa á ekki við í dag.  Nú myndi enginn lána peninga nema að meta verðbólguhorfur  og setja það inn í vextina.  Þá sæi lántakinn strax hvort hann réði við afborganir.  Enginn óútfylltur verðbótavíxill, geymdur til að borga á elliárum.   Framboð og eftirspurn næðu jafnvægi eftir tiltölulega skamman tíma  með lækkandi vöxtum og verðbólgu.   Það vita allir nema  hagfræðingarnir í Seðlabankanum að í vísitöluþjóðfélaginu hér er vaxtahækkun bara ávísun á hærra vöruverð og aukna þenslu.  Þvert ofan í markmiðið.  Í framhaldinu þarf svo að taka algerlega í gegn einn stærsta þjófnað íslandssögunnar, sem fer fram í gegn um lífeyrissjóðina.  Gylfi og félagar ættu að  huga að þeim málum. En miðað við úrslitin  hjá þeim um verðtrygginguna er víst ekki mikils gáfulegs að vænta úr þessum herbúðum.
mbl.is Óttast aðra kollsteypu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband