Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Þó fyrr hefði verið.

Auðvitað á að banna innflutning og sölu á tóbaki og hefði átt að vera búið fyrir löngu. Það þýðir ekkert að bera það saman við áfengisbann, einfaldlega vegna þess að það getur hver sem vill bruggað sinn landa en málið verður erfiðara fyrir þá sem vilja framleiða tóbak.  Það myndu sárafáir unglingar byrja reykingar ef þessi ófögnuður yrði tekinn úr verslunum. Svo er ótalinn sóðaskapurinn í kringum reykingarnar þar sem það virðist viðtekin venja hjá reykingafólki að henda frá sér stubbunum hvar sem er og hvenær sem er.  Svo hefur verið á það bent að þeir sem ekki geta hætt þegar bannið tekur gildi geti fengið ávísun á sitt tóbak það sem þeir eiga eftir ólifað.

 


mbl.is Hugmynd um að banna tóbakssölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar endar þetta?

Er virkilega hvergi hægt að grafa upp menn eða konur í þessi störf, án þess að viðkomandi hafi verið á kafi í sukkinu sjálfur.
mbl.is Skuldar milljarða og eiginkona forstjórans í bankaráði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þörf á þessu?

Nú sitja þessir strákar heima á fullu kaupi hjá okkur, sem ólum þá upp án allrar hjálpar  fyrir ekki svo löngu síðan.  Það er langur ómagahálsinn, var einu sinni sagt.
mbl.is Metár hjá Fæðingarorlofssjóði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hviðóttur?

Er nú MBL líka  farið að nota nýyrðið eða orðskrípið  ,,hviðótt"    Sú var tíðin að á þeim bæ vönduðu menn málfar sitt betur.   
mbl.is Væta um allt land í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað héldu menn?

Það var auðvitað löngu ljóst að byggingarbrjálæðið hlaut að taka enda. Jafnvel þó að bankarnir hefðu ekki hrunið. Þáttur sveitarfélaganna í meðvirkninni var t.d. ótrúlegur. Þar eru menn núna að súpa seyðið af vitleysunni, eins og svo margir aðrir.


mbl.is „Það er ekkert að fara að breytast"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofvirkir fjölmiðlar

Frábært að einhver skuli græða á þessum linnulausa og yfirdrifna hræðsluáróðri fjölmiðlanna.  Þeir mættu nú hægja aðeins á í  þessu og fjalla aðeins um eitthvað annað.

 


mbl.is Kaupa rykgrímur og spritt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Taugatrekkt fjölmiðlafólk

Eru fréttamenn almennt að missa sig í þessari flensuumræði?  Blöð og ljósvakamiðlar fjalla linnulaust um þetta, sem í rauninni er allt mjög óljóst enn.  Er ekki í lagi að slaka aðeins á og vera  ekki með þetta  í stríðsfréttaletri á forsíðum blaðanna og þar að auki eru fráttaskýringaþættir ljósvakamiðlanna meira og minna undirlagðir af þessari umræðu. 
mbl.is Tvö óstaðfest tilfelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta rétt að farið?

Svona eltingaleikur hefur kostað mannslíf og er mjög  umdeilanlegt hvort rétt sé að standa svona að málum.  Blásaklausir vegfarendur eru settir  í stórhættu auk ökufantsins og lögreglumannanna.  Þegar lögreglan er búin að sjá bílnúmerið hefur hún alla möguleika á að ná ökuníðingnum seinna og þá á ekki að sýna þessum mönnum neina vægð.

 


mbl.is Verður yfirheyrður seinna í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Batnandi ,,mönnum" er best að lifa.

Gott að sjá einhverja viðleitni í þessa átt. Fólk á það virkilega inni hjá þessum stofnunum að þar sé reynt að veita allt það liðsinni sem hugsast getur. Það liggur við að maður hafi fengið  hálfgert óbragð í munninn við að hlusta á auglýsingar bankanna undanfarið um alls konar fjármálaráðgjöf og ,,fjárhagslega heilsu",  eftir allt það sem á undan er gengið.
mbl.is Ný lausn erlendra lána
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er ágætt.

Það er bara fínt að sjálfstæðis og framsóknarmenn verði sem mest í svona leðjuslag. Það hæfir þeim best og með því reyta þeir af sér  ótalin fjölda atkvæða. Þjóðin kann ekki að meta að flokkarnir sem settu okkur á hausinn þvælist nú fyrir bráðnauðsynlegum málum.
mbl.is Mikil fundahöld í þinghúsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband